Myndatöku check listi, 12 ráð 


Mig langar að deila með ykkur 12 góðum ráðum sem gott er að hafa í huga þegar farið er í myndatöku - hvort sem er í stúdíói eða annarsstaðar. Sumt af þessu gæti hljómað random, en þegar kemur að lokaútkomunni þá skiptir þetta oft meira máli en fólk heldur. Þetta eru hlutir sem ég sé aftur og aftur að fólk gleymir, smáatriði sem geta haft mikil áhrif á útkomu myndanna. 



Verið í fötum sem ykkur líður vel í

Ef þér líður óþægilega í fötunum sem þú klæðist þá mun það sjást á myndunum. Veldu föt sem þér líður vel og endurspegla þinn stíl - klæðnaður er tjáning. 


Samræmið klæðnað án þess að vera alveg eins

Hugsið um litapallettu, áferð (texture) og stíl. Þið þurfið alls ekki að vera í eins fötum en það ætti að líta út eins og þið séuð öll að fara á sama staðinn. Ekki einn á árshátíð, annar í Krónuna og sá þriðji á ströndina. 


Veljið föt í samráði við börnin

Ef börnunum líður ekki vel í fötunum sínum þá mun það sjást á myndunum. Leyfið þeim að hafa eitthvað með það að segja. (Ef einhver hefði troðið mér í kjól sem barn og skellt mér fyrir framan myndavél…. það hefði ekki endað vel)


Forðist stór logo

Logo eru oft mjög áberandi og draga athyglina frá því sem skiptir máli. Þau eldast líka oft illa á myndum. 


Komið með börnin tilbúin.

Best er að mæta með börnin í þeim fötum sem þau eiga að vera í. Að skipta um föt í ókunnugu umhverfi getur verið stressandi fyrir börn og oft endar það ekki vel.


Neglur og puttar

Hreinar neglur skipta meira máli en margir halda.  Forðist líka brúnkukrem klessur á höndum. 


Varasalvi

Þurrar eða sprungnar varir sjást vel á myndum. Notið varasalva dagana fyrir og í myndatökunni sjálfri. Þetta á við um alla, líka börn.


Krem á kulda bitnar kinnar 

Gott er að bera feitt krem á kinnar barnanna í nokkra daga fyrir myndatöku.


Förðun

Ef þú notar farða þá má hann alveg vera aðeins meiri en þér finnst venjulega passlegt, sérstaklega þegar notuð eru stúdíóljós, þau „taka” smá af honum. 


Gel á litlu hárin

Ef þú vilt halda baby hárunum niðri, þá getur smá gel gert stóran mun á lokaútkomunni. 


Olía á bumbu (meðgöngumyndataka)

Í meðgöngumyndatöku er bumban í aðalhlutverki. Smá olía á bumbuna gefur fallegan glans þannig að hún nýtur sín enn betur. 


Forðist það sem skilur eftir far á húðinni

Ekki vera í þröngum fötum rétt fyrir myndatöku sem skilja eftir för. Forðist líka teygjur á úlnlið, íþróttaúr eða annað sem skilur eftir far. 



Þetta eru kannski smáatriði en þau skipta ótrúlega miklu máli þegar kemur að lokaútkomunni, við viljum enga fullkomnun en smá undirbúningur getur gert gæfumuninn. Mikilvægast er að ykkur líður vel - því þannig verða myndirnar alltaf fallegri. 


Þangað til næst xx

Harpa




Next
Next

Mæðradags myndatökur 2026