Mæðradags myndatökur 2026
Á einhverjum tímapunkti fyrir nokkrum árum, eftir að hafa talað við margar mömmur sem höfðu sömu sögu að segja, byrjaði ég að taka eftir ákveðnu mynstri. Mömmur eru í flestum tilfellum þær sem sjá um myndatökur heimilisins, passa upp á að festa allt þetta mikilvæga og hversdagslega á filmu, með þeim afleiðingum að þær gleymast oft. Afraksturinn eru fullt af myndum af börnunum og af börnunum með pabba, en hvar er mamma?
Ég ákvað að bjóða upp á mæðradags myndatökur árið 2024, svona ákveðinn óður til móður, þar sem fókusinn átti að vera á mömmuna og börnin hennar. Þetta var í kringum mæðradaginn og ég tók þrjá daga frá í þessar myndatökur, um var að ræða mini hraðmyndatökur, sem voru aðeins ódýrari og styttri en þessar hefðbundnu myndatökur. Viðtökurnar stóðu ekki á sér, augljóslega var þörf á þess háttar myndatökum en líka á þessari umræðu. Í ár er þriðja árið sem ég býð upp á mæðradagsmyndatökur, hefð sem mér þykir orðið ansi vænt um og er komin til að vera, í ár seldi ég upp 40 pláss á sólarhring.
Að taka myndir af börnunum er mikilvægt, eins og það er gaman að fara með börnin í myndatöku til ljósmyndara þá eru þær myndir sem eru teknar heima í hversdagsleikanum ennþá dýrmætari. Þær þurfa ekki að vera fullkomnar og þær þurfa ekki að vera birtingahæfar, þær eru bara fyrir ykkur - ákveðin heimild um dagana ykkar, en þær þurfa að innihalda mömmu líka. Pabbar, ekki týna mömmu á bak við myndavélina, takið myndir af henni og börnunum þegar hún á ekki von á, þegar hún er að hugga, leika, dansa og sinna þeim. Þannig náið þið að eignast gullkistu af myndum sem með tímanum verður ennþá mikilvægari.
Þangað til næst xx
Harpa