Af hverju þú ættir að prenta ljósmyndirnar þínar - ekki bara geyma þær í símanum

Það er blanda af fortíðarþrá og skynsemi sem lætur mig halda áfram að tönglast á mikilvægi þess að prenta ljósmyndirnar. Ég held að við munum öll eftir því þegar við fengum að fletta í gegnum myndaalbúmið hjá ömmu og afa og veggir heimila voru flestir fullir af ljósmyndum.

Á mínu æskuheimili var allt prentað jafnóðum og sett í albúm og veggirnir voru þaktir ljósmyndum í römmum. En það var ekki nóg, því mamma var líka með kistu fulla af ljósmyndum. Við erum að tala um ljósmyndir í þúsunda tali. Í mínum augum er þetta algjör gullkista. Myndirnar eru af öllu mögulegu, en aðallega af hversdagsleikanum.

Í kistunni er að finna minningar síðustu áratuga, margar frá því áður en ég fæddist. Ég elska að skoða þessar myndir, sjá hvernig tískan var í klæðnaði, á heimilum og umbúðum - ég fæ nostalgíukast þegar ég sé glitta í gamlar Svala fernur og Ópal pakka.

Við eigum öll endalaust af myndum í símanum og í tölvunni. Auðvitað geymum við myndirnar líka stafrænt, við erum jú skynsöm. En það er ekki alveg það sama og að hafa þær prentaðar. Á harða diskinum eiga myndirnar til að gleymast.

Myndir uppi á vegg og í albúmum skapa svo skemmtilega heimilis stemningu. Minningarnar verða raunverulegri og það er ákveðin upplifun að fletta í gegnum albúm. Þetta er ekkert annað en fjölskylduarfur.

Sem ljósmyndari hugsa ég oft um þetta þegar ég mynda fjölskyldur. Myndirnar sem við tökum í dag eru ekki bara fyrir samfélagsmiðla, þær eru fyrir framtíðina. Fyrir börnin okkar, og kannski barnabörnin líka. Þess vegna finnst mér svo mikilvægt að þær endi ekki bara í símanum heldur líka á veggjum heimilanna og í albúmum sem verða hluti af fjölskyldusögunni.

Hér eru nokkur góð ráð til að varðveita prentaðar ljósmyndir þannig að þær endist í áratugi

Geymdu þær í sýrufríum umslögum eða albúmum

Notaðu sýrufrí albúm eða umslög. Forðastu venjuleg plastvasa albúm frá ódýrum verslunum, því þau geta gulnað og skemmt myndirnar. Öruggast er að kaupa albúm hjá prentstofum.

Haltu þeim frá sólarljósi

UV-ljós eyðileggur litarefni í ljósmyndum. Geymdu myndir í lokuðum kössum, í skápum eða skúffum. Ef þú rammar inn mynd er gott að nota UV-varnargler.

Rétt hitastig og raki

Bestu skilyrði fyrir ljósmyndir eru:

-Hitastig: 15-20 °C

-Raki: 30-40%

Þess vegna er best að forðast að geyma myndir uppi á háalofti, í kjallara eða í bílskúrum, eða nálægt ofnum og gluggum. Miklar hitasveiflur og raki geta valdið myglu og litafölun.

Ekki snerta myndflötinn með fingrum

Olía úr húð getur skemmt ljósmyndir. Best er að halda á myndunum á brúnunum og nota bómullar- eða nitril hanska ef myndirnar eru gamlar eða verðmætar.

Kannski verður einhver að fletta í gegnum myndirnar okkar eftir 30 eða 50 ár og sjá hvernig lífið var hjá okkur í dag.

Þess vegna finnst mér svo mikilvægt að prenta myndirnar, því þær eru ekki bara myndir heldur minningar sem eiga skilið að lifa lengi.

Þangað til næst xx

Harpa

Next
Next

Myndatöku check listi, 12 ráð