Skilmálar

Allur höfundaréttur að ljósmyndunum er í eigu ljósmyndara, Hörpu Óskar Wium.

  • Um höfundarrétt ljósmyndara gilda höfundarréttarlög nr. 73 / 1972.

  • Afhending ljósmynda til viðskiptavina felur lögum samkvæmt ekki í sér framsal á höfundarrétti né veitir hún heimild til breytinga á ljósmyndum.

  • Óheimilt er að breyta myndunum á nokkurn hátt.

  • Óheimilt er að nota myndirnar til auglýsinga eða annarrar birtingar nema samið sé sérstalega um slíkt.

  • Myndirnar afhendast rafrænt, í prentupplausn.

  • Eftir að myndir berast viðskiptavini eru þær á hans ábyrgð.

  • Hægt er að kaupa auka myndir í 14 daga frá afhendingu mynda.

  • Viðsiptavinur hefur 1-2 daga til þess að velja myndir (í þeim tilfellum sem við á) annars velur ljósmyndari myndir.

  • Ljósmyndari áskilur sér rétt á 3 vikna tíma til myndvinnslu áður en myndir eru afhentar, eftir að viðskiptavinur hefur valið myndir.

  • Viðskiptavinur fær undir engum kringumstæðum allar myndir úr töku eða óunnar myndir.

  • Myndir eru ekki afhentar fyrr en full greiðsla hefur borist.

  • Bókun á myndatöku á sér ekki stað fyrr en staðfestingargjald hefur verið greitt.

  • Staðfestingargjald er óafturkræft en gengur upp í lokaupphæð.

  • Ljósmyndari áskilur sér rétt til þess að birta myndirnar á sínum miðlum, nema annað sé tekið fram áður en myndatakan á sér stað.

  • Notkun þjónustarinnar felur í sér samþykki á þessum skilmálum.

  • Birting ljósmynda á ekki við í tilfelli fæðingarljósmyndunar.

Virðingarfyllst, Harpa Ósk Wium