Feðradags myndatökur 2026
Ég hef haldið mæðradaginn hátíðlegan í stúdíóinu síðastliðin 3 ár og boðið upp á mæðradags myndatökur sem hafa verið vinsælar og svo skemmtilegar! En ég hef fengið nokkur komment og skilaboð frá pöbbum þar sem ég er spurð af hverju ég geri ekki það sama á feðradaginn, pabbar eru jú líka æði flestir.
Þannig að ég ætla að prófa núna í ár að halda extra vel upp á pabbana og bjóða upp á feðradags myndatökur, þar sem við fókusum á pabbann og barnið / börnin (og barn/börn lesist sem synir og dætur á öllum aldri).
Það verður spennandi að sjá hvort þetta concept verði jafn vinsælt og mæðradags myndatökurnar.
Þangað til næst xx
Harpa